Skipulagsfulltrúi

Klettsbúð 4
Sími: 433 6900

Skrifstofa skipulagsfulltrúa er við Klettsbúð 4 á Hellissandi. Skrifstofa er opin á opnunartíma Ráðhúss.

Í Snæfellsbæ er starfandi skipulagsfulltrúi og fer hann með umsjón skipulagsmála í sveitarfélaginu. Hlutverk hans er m.a. að veita íbúum, kjörnum fulltrúum, ráðgjöfum, hönnuðum, byggingarverktökum og öðrum þeim sem á þurfa að halda, góða þjónustu, ráðgjöf og upplýsingar um skipulagsmál.

Markmiðið er að vinna að hag íbúa með vönduðum vinnubrögðum við skipulag. Að tryggja hagsmuni húseigenda með því að farið sé eftir lögum og reglugerðum við skipulag og hönnun bygginga og annarra mannvirkja. Að tryggð sé eftir föngum fljót og góð þjónusta við íbúa og aðra viðskiptavini.

Helstu verkefni skipulagsfulltrúa eru að leiðbeina og svara fyrirspurnum um skipulagsmál, tryggja rétta málsmeðferð skipulagsmála, vinna sértæk skipulagsverkefni fyrir Snæfellsbæ, veita umsagnir um ýmsar leyfisumsóknir, annast samráð við opinbera aðila, almenning og aðra hagsmunaðila, annast kynningar, kynningarfundi og auglýsingar á skipulagstillögur, annast grenndarkynningar vegna breytinga á deiliskipulagi, útgáfa framkvæmdaleyfa og eftirlit með framkvæmdaleyfisskyldum framkvæmdum.

Skipulagsfulltrúi er Hildigunnur Haraldsdóttir.

Getum við bætt efni þessarar síðu?