Bæjarstjórnarfundir

Klettsbúð 4
Sími: 433 6900

Bæjarstjórn heldur reglulega fundi, fyrsta fimmtudag hvers mánaðar, í fundarsal Ráðhúss Snæfellsbæjar við Klettsbúð 4 á Hellissandi.

Bæjarstjórnarfundir skulu að jafnaði hefjast kl. 16.00. Heimilt er að fella niður fundi í bæjarstjórn í allt að tvo mánuði að sumarlagi.

Aukafundi skal halda í bæjarstjórn eftir því sem þörf krefur að mati forseta bæjarstjórnar og bæjarstjóra og skylt er að halda aukafund í bæjarstjórn ef a.m.k. þriðjungur bæjarfulltrúa krefst þess, enda geri þeir grein fyrir ástæðum og fundarefni.

Falli reglulegur fundardagur á helgidag eða almennan frídag, skal boða til aukafundar þann virkan dag á undan eða eftir, sem næstur er.

Getum við bætt efni þessarar síðu?