Bókasafn Snæfellsbæjar

Hjarðartún 4-6 í Ólafsvík
Sími: 433 6928

Opnunartími frá 1. október 2023 til 30. apríl 2024:

  • Mánudaga frá kl. 16 – 18
  • Þriðjudaga frá kl. 11 - 13
  • Miðvikudaga frá kl. 16 – 18
  • Fimmtudaga frá kl. 11 – 13

Það eru allir velkomnir á Bókasafn Snæfellsbæjar og ekkert árgjald er fyrir íbúa Snæfellsbæjar. Flestir ættu að geta fundið sér góða bók við sitt hæfi. Nýjustu skáldsögur og barna- og unglingabækur eru keyptar inn fyrir safnið. Við hvetjum allla til að nýta sér það sem þetta fallega safn hefur upp á að bjóða.

Munum Þjóðarsáttmála um læsi, sem hefur það markmið að öll börn geti lesið sér til gagns við lok grunnskóla. Nýtum Bókasafnið, hvetjum börnin okkar til að lesa sér til gamans.

Getum við bætt efni þessarar síðu?