Vinnuskóli

Klettsbúð 4
Sími: 433 6900

Skrifstofa vinnuskólans er hjá Tæknideild Snæfellsbæjar í Ráðhúsi Snæfellsbæjar.

Vinnuskóli Snæfellsbæjar býður unglingum bæjarins uppá skemmtilega og fræðandi sumarvinnu.

Upplýsingar fyrir vinnuskólann sumarið 2023

Vinnuskólinn verður starfræktur í sex vikur, frá 7. júní til 19. júlí.

Nemendur sem voru að ljúka 8. bekk starfa í fjórar vikur, frá 7. júní til 5. júlí.
Nemendur sem voru að ljúka 9. og 10. bekk starfa í sex vikur, frá 7. júní til 19. júlí.

Unglingar fæddir 2006 geta einnig sótt um í vinnuskólanum, og vinna þeir sama tímabil og nemendur í 9. og 10. bekk.

Daglegur vinnutími nemenda sem voru að ljúka 8. bekk er frá frá kl. 8:00 – 12:00.
Daglegur vinnutími nemenda sem voru að ljúka 9., 10. bekk og hjá unglingum fæddum árið 2006 er frá kl. 8:00 – 16:35 með hádegismat nema á föstudögum, þegar unnið er til kl. 12:00.

Athugið: Nemendur sem voru að ljúka 10. bekk og unglingar í árgangi 2006 þurfa að skila rafrænum persónuafslætti og greiða í lífeyrissjóð. Iðgjöld reiknast frá næstu mánaðarmótum eftir 16 ára afmælisdag.

Laun vegna vinnuskóla 2023

 

16 og 17 ára unglingar:

Launaflokkur 117, kr. 397.545.-

dv.kr. 2.445.-, yv.kr. 4128.-

 

14 og 15 ára unglingar:

75% af launafl.117. kr. 298.159.-

dv.kr.1.834.-, yv. kr.3.096-

 

13.04% orlof bætist ofan á laun allra í vinnuskóla.

Laun eru reiknuð skv. samningi Kjalar stéttarfélags starfsmanna í almannaþjónustu.

Nemendur vinnuskóla mæta á eftirfarandi staði, fer eftir búsetu:

  • Ólafsvík – Áhaldahús Snæfellsbæjar
  • Hellissandur – rúta fer frá Grunnskólanum á Hellissandi
  • Rif – rúta fer frá strætóskýlinu efst í Háarifi

Reglur vinnuskólans eru einfaldar og skýrar:

  • Mæta skal á réttum tíma á réttum stað.
  • Sýna skal flokkstjórum kurteisi.
  • Einelti er ekki liðið.
  • Reykingar/notkun munntóbaks er stranglega bannað.
  • Notkun GSM-síma, og annarra snjalltækja, er bönnuð, enda tekur bærinn enga ábyrgð á slíkum tækjum.
  • Öll forföll þarf að tilkynna til verkstjóra.
  • Leggja þarf til allan vinnufatnað og galla en Vinnuskólinn leggur til öryggisvesti.
  • Ætlast er til að krakkarnir mæti með nesti (ekki leyfilegt að fara af vinnustað í pásum).
  • Klæðnaður skal hæfa veðri og eðli vinnunnar.

Vinnuskólinn er eingöngu ætlaður fyrir börn sem eiga lögheimili í sveitarfélaginu eða eiga foreldri með lögheimili í sveitarfélaginu.

Umsóknarfrestur er til og með 21. maí 2023. Sótt er um starf í gegnum nýja þjónustugátt Snæfellsbæjar.

Getum við bætt efni þessarar síðu?