Styrkir frá Samgöngustofu til verkefna sem tengjast öryggi á sjó

Ár hvert veitir Samgöngustofa styrk/styrki til ýmissa rannsóknarverkefna sem tengjast öryggi skipa, atvinnusjómanna, farþega og búnaðar um borð í skipum sem og verkefna sem snúa að heilsusamlegu umhverfi sjófarenda.

Gert er ráð fyrir að veita styrki til einstaklinga og/eða félaga sem koma með tillögur að lausnum í þessa átt. Heildarstyrkupphæðin hljóðar upp á 2.500.000 krónur að hámarki hvert ár og er öllum frjálst að sækja um.

Umsóknareyðublað, upplýsingar um fylgigögn, reglur og markmið styrkveitinganna má finna á vefsíðunni island.is.

Umsóknarfrestur er til 15. maí 2024.