Byggingarfulltrúi

Klettsbúð 4
Sími: 433 6900

Skrifstofa byggingarfulltrúa er við Klettsbúð 4 á Hellissandi. Skrifstofa er opin á opnunartíma Ráðhúss.

Í Snæfellsbæ er starfandi byggingarfulltrúi sem er yfirmaður byggingarmála í sveitarfélaginu. Hlutverk hans er að veita bæjarbúum, bæjarfulltrúum, hönnuðum, byggingarverktökum og öðrum sem á þurfa að halda, góða þjónustu, ráðgjöf og upplýsingar um byggingarmál.

Helstu verkefni byggingarfulltrúa eru móttaka umsókna byggingar-, stöðu- og framkvæmdaleyfa, móttaka og skráning séruppdrátta, auk skráningar byggingarstjóra og iðnmeistara á byggingarframkvæmdir. Á skrifstofunni fer einnig fram framkvæmd áfangaúttekta, fokheldisúttekta, stöðuúttekta, öryggisúttekta og lokaúttekta auk skráninga í gagnagrunn Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar og staðfesting eignaskiptayfirlýsinga.

Einnig eru þar gerðar umsagnir vegna rekstrarleyfa og að lokum er reynt af allra bestu getu að leiðbeina og veita upplýsingar um það sem tengist byggingarmálum.

Ath. Ekki er starfandi byggingarfulltrúi hjá sveitarfélaginu sem stendur, en hægt er að senda erindi á netfangið byggingarfulltri@snb.is.

Getum við bætt efni þessarar síðu?