Grunnskóli Snæfellsbæjar auglýsir eftir umsjónarkennurum fyrir skólaárið 2024-2025

Grunnskóli Snæfellsbæjar er þriggja starfsstöðva grunnskóli með um 210 nemendur. Starfsstöðvar hans eru í Ólafsvík, á Hellissandi og á Lýsu.

Auglýst er eftir umsjónarkennurum í yngri deild (1.-5. bekk) norðan Heiðar, í Ólafsvík og á Hellissandi.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf
  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum
  • Hæfni í mannlegum samskiptum og góðir skipulagshæfileikar
  • Reynsla af teymisvinnu og áhugi á þróunarstarfi
  • Góð íslenskukunnátta er skilyrði

Laun eru samkvæmt kjarasamningi KÍ og Launanefndar sveitarfélaga.

Umsóknarfrestur er til 2. apríl 2024. Sækja skal um í gegnum ráðningarvef Snæfellsbæjar.

Frekari upplýsingar veitir Hilmar Már Arason, skólastjóri, í síma 894 9903 eða á netfanginu hilmara@gsnb.is.