Fjölbreytt sumarstörf fyrir ungmenni hjá Snæfellsbæ

Snæfellsbær býður einstaklingum 18 ára og eldri upp á fjölbreytta og skemmtilega útivinnu í sumar sem hefur það að leiðarljósi að fegra umhverfi Snæfellsbæjar.

Leitað er að einstaklingum til að starfa við fjölbreytt og uppbyggileg störf sem samanstanda hvort tveggja af almennum verkefnum Áhaldahúss Snæfellsbæjar og flokkstjórn vinnuskólahópa. Umsækjendur þurfa að vera 18 ára eða eldri og vera reiðubúnir að starfa við áðurtalin störf á þriggja mánaða tímabili, eða frá 15. maí 2024.

Sumarvinna

  • Um er að ræða 100% störf í þrjá mánuði, frá 15. maí 2024.
  • Umsækjendur þurfa að vera 18 ára eða eldri.
  • Umsækjendur þurfa að vera færir um að stýra vinnuskólahópi og hafa áhuga á að vinna með og fræða unglinga.
  • Umsækjendur þurfa að vera duglegir, áhugasamir um útivinnu, tóbakslausir, sjálfstæðir og góðar fyrirmyndir.
  • Þekking á staðháttum í sveitarfélaginu er æskileg.

Umsóknarfrestur er til 29. apríl 2024. Ekki er tekið við umsóknum að umsóknarfresti liðnum.

Sótt er um störfin á ráðningarvef hér á vefsíðu Snæfellsbæjar.