255. fundur bæjarstjórnar Snæfellsbæjar, haldinn þriðjudaginn 1. október 2013 og hófst hann í fundarsal Ráðhúss Snæfellsbæjar kl. 16:00.
Mættir:
Jón Þór Lúðvíksson
Kristín Björg Árnadóttir
Kristjana Hermannsdóttir
Rögnvaldur Ólafsson
Kristján Þórðarson
Fríða Sveinsdóttir
Drífa Skúladóttir
Kristinn Jónasson, bæjarstjóri
Lilja Ólafardóttir, bæjarritari
Forseti bæjarstjórnar setti fund og bauð bæjarfulltrúa velkomna. Eitt erindi, fundargerð 79. fundar umhverfis- og skipulagsnefndar, barst bæjarstjórn eftir að fundarboð var sent út og óskaði forseti eftir því að fá að taka það inn með afbrigðum sem 16. lið. Var það samþykkt og að svo búnu gengið beint til boðaðrar dagskrár.
Dagskrá bæjarstjórnarfundarins:
1. Fundargerð 18. fundar landbúnaðarnefndar Snæfellsbæjar, dags. 1. september 2013.
Fundargerðin samþykkt samhljóða.
2. Fundargerð 1. fundar nefndar um málefni fatlaðra í Snæfellsbæ, dags. 3. september 2013.
Fundargerðin samþykkt samhljóða.
3. Fundargerð stjórnarfundar SSV, dags. 19. ágúst 2013.
Lagt fram til kynningar.
4. Fundargerð stjórnarfundar SSV, dags. 12. september 2013.
Lagt fram til kynningar.
5. Fundargerð 359. fundar stjórnar Hafnasambands Íslands, dags. 3. september 2013.
Lagt fram til kynningar.
6. Fundargerð 808. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélags, dags. 13. september 2013.
Lagt fram til kynningar.
7. Bréf frá Kennarafélagi Vesturlands, dags. 18. september 2013, varðandi styrk til að halda þing kennarafélags Vesturlands í Snæfellsbæ þann 4. október n.k.
Bæjarstjórn samþykkti samhljóða að veita umbeðinn styrk.
8. Bréf frá Guðmundi Alfreðssyni og Birnu Guðmundsdóttur, dags. 5. september 2013, varðandi fréttaflutning í fjölmiðlum.
Kristín Björg vék af fundi undir þessum lið.
Nokkur umræða varð um málið.
Til máls tóku KÞ, DS, JÞL, KJ, FS, KH
Bæjarstjórn samþykkti samhljóða að fela bæjarstjóra og bæjarritara að svara bréfinu á þeim nótum sem rætt var á fundinum.
Kristín Björg mætti nú aftur á fundinn.
9. Breytingartillaga að starfsreglum svæðisskipulagsnefndar, ásamt gildandi starfsreglum.
Bæjarstjórn samþykkti að fela bæjarráði að tilnefna varamenn fyrir hönd Snæfellsbæjar í svæðisskipulagsnefnd.
10. Bréf frá Þróunarfélagi Snæfellinga, dags. 25. september 2013, varðandi fjárframlag.
Samþykkt að vísa erindinu til fjárhagsáætlunargerðar
11. Bréf frá Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, dags. 11. september 2013, varðandi auglýsingu um umsókn um byggðakvóta fiskveiðiárið 2013/2014.
Bæjarstjóri sagði frá því að búið væri að sækja um fyrir fjóra byggðakjarna í Snæfellsbæ.
12. Bréf frá Samgöngustofu, dags. 6. september 2013, varðandi umferðarsáttmálann.
Lagt fram til kynningar.
13. Bréf frá Matís, dags. 5. september 2013, varðandi fjármögnun á doktorsverkefni.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða þátttöku um fjármögnun á 36 mánaða doktorsverkefni á grundvelli erindis frá Matís í samstarfi við önnur sveitarfélög og fyrirtæki á svæðinu.
14. Bréf frá Brunabót, dags. 6. september 2013, varðandi ágóðahlutagreiðslu 2013.
Lagt fram til kynningar.
15. Bréf frá Innanríkisráðuneytinu, dags. 18. september 2013, varðandi Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.
Lagt fram til kynningar.
16. Fundargerð 79. fundar umhverfis- og skipulagsnefndar, dags. 1. október 2013.
Fundargerðin samþykkt samhljóða.
17. Minnispunktar bæjarstjóra
a) bæjarstjóri sagði frá fjarskiptamálum á sunnanverðu Snæfellsnesi.
b) bæjarstjóri lagði fram skýrslu um kostnað við framkvæmdir við sundlaugina.
c) bæjarstjóri gerði grein fyrir útsvarstekjum fyrstu 9 mánuði ársins.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 17:30
____________________________
Jón Þór Lúðvíksson
____________________________ ___________________________
Kristjana Hermannsdóttir Kristján Þórðarson
____________________________ ___________________________
Kristín Björg Árnadóttir Fríða Sveinsdóttir
____________________________ ___________________________
Rögnvaldur Ólafsson Drífa Skúladóttir
____________________________ ____________________________ Kristinn Jónasson, bæjarstjóri Lilja Ólafardóttir, bæjarritari |